Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn

læknaði sig sjálfur og sá sem veitir

meðferð sé aðeins verkfæri

náttúrunnar til þess.

 

Allt sem ég geri með aðstoð TFT

meðferðar, Bowen tækni eða með

höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

miðar að því að hjálpa líkamanum til

þess að lækna sig sjálfur.

 

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla

líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér

- með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns.

Hvað er Thought Field Therapy?

Meðferðin sem hér er kynnt og er einfaldlega kölluð TFT-meðferð (e. Thought Field Therapy) hefur verið í þróun Bandaríkjunum í meira en aldarfjórðung en stendur nú fyrst til boða á Íslandi.

TFT-meðferð beinist gegn ýmiss konar sálrænum, andlegum og tilfinningalegum vandamálum og er ætlað að hjálpa fólki við að yfirvinna þröskulda eða hindranir sem geta haft verulega hamlandi áhrif á daglegt líf þess.

Aðferðin felst í því að ýta undir náttúrulega hæfileika líkamans til að lagfæra vandamál.TFT-meðferðin samanstendur af einfaldri og auðskiljanlegri tækni. Hún nýtir vökvaþrýstingspunkta sem einstaklingurinn virkjar með því einfaldlega að banka eða pikka létt með fingurgómunum á meðan hugsað er um vandamálið.

Notast er við ákveðið kerfi eða röð aðgerða eftir því sem við á hverju sinni. Þessi aðferð getur gert tilfinningaleg og sálræn vandamál óvirk og oft jafnvel útrýmt þeim alveg. Markmiðið með TFT-meðferðinni er að koma á jafnvægi í orkukerfi líkamans.