Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn

læknaði sig sjálfur og sá sem veitir

meðferð sé aðeins verkfæri

náttúrunnar til þess.

 

Allt sem ég geri með aðstoð TFT

meðferðar, Bowen tækni eða með

höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

miðar að því að hjálpa líkamanum til

þess að lækna sig sjálfur.

 

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla

líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér

- með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns.

Um mig

Ég hóf starfsemi sem höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari á Akureyri í byrjun júlí 2003.  Í ársbyrjun 2010 hóf ég starfsemi á höfuðborgarsvæðinu og mun vinna þar ásamt því að halda áfram starfsemi á Akureyri.

Ég hóf ég nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri haustið 2003 til þess að öðlast betri innsýn í meðhöndlun líkamans og samskipti við skjólstæðinga mína og útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur vorið 2007.

Vorið 2005 hóf ég að kynna mér TFT-meðferð (Thought Field Therapy) og sótti námskeið í þeirri aðferð í Chicago í september 2005 eftir að hafa farið í gegnum yfirgripsmikið sjálfsnám með aðstoð bóka, diska og myndbanda sumarið 2005.

Ég er eini Íslendingurinn sem sótt hefur nám í TFT og fengið skírteini og leyfi frá Callahan Techniques til að kenna meðferðina. Í september árið 2007 fékk ég leyfi til að kenna meðferðarrunu (algorithm) námskeið TFT eftir að hafa lokið tilskyldu námi.

Ég hef lokið námi í Cranio-skólanum, sem er skilyrði fyrir inngöngu í Cranio – félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara á Íslandi. Námið er yfirgripsmikið og þeir nemendur sem ljúka námi eru færir um að veita árangursríka meðferð við margs konar kvillum. Námið er í sex hlutum og tekur samtals tvö ár þar sem skiptast á krefjandi námskeið og reglulegar æfingar og heimaverkefni. Nánari upplýsingar um námið er að finna hér á vefnum. Jafnframt námi í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun tók ég að mér að þýða námsefnið sem  Thomas Attlee, stofnandi og skólastjóri College of Cranio-Sacral Therapy (CCST) í London, hefur samið og notar við kennsluna. Ég sótti fyrsta námskeiðið af sex í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun í maí 2001 og það sjötta og síðasta í júní 2003.

Nám í Bowen tækni skiptist í fimm hluta og hef ég lokið því námi með verklegu og skriflegu prófi undir handleiðslu Margeirs Sigurðarsonar og Julians Baker, skólastjóra European College of Bowen Studies (ECBS) í London, en nánari upplýsingar um námið er að finna á öðrum stað hér á þessum vef og á öðrum vefjum sem vísað er til. Í apríl 2005 tók ég námskeið þar sem ítarlega er fjallað um notkun Bowen tækninnar gegn íþróttameiðslum af ýmsu tagi. Kennari á því námskeiði var Paula Esson frá Englandi.  Einnig hef ég lokið námskeiði þar sem sérstök áhersla er á axlir og mjaðmagrind.

Ég er fædd 1963, bý og starfa á Akureyri, er í sambúð og á fjögur börn. Ég hef mikinn áhuga á andlegum og dulrænum málefnum, sérstaklega í tengslum við það að bæta líf og heilsu, bæði hjá sjálfri mér og öðrum

.