Líkaminn læknar sig sjálfur
Hippocrates sagði að líkaminn
læknaði sig sjálfur og sá sem veitir
meðferð sé aðeins verkfæri
náttúrunnar til þess.
Allt sem ég geri með aðstoð TFT
meðferðar, Bowen tækni eða með
höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun
miðar að því að hjálpa líkamanum til
þess að lækna sig sjálfur.
Ég hjálpa þér með því að meðhöndla
líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér
- með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns.
| Um rannsóknir á Bowen tækni |
|
Hér að neðan er að finna upplýsingar um ýmsar rannsóknir á virkni Bowen tækninnar og reynslusögur af notkun hennar.
Fyrsta skal nefna rannsókn mína: "Áhrif Bowen tækni á börn með ofvirkni og/eða athyglisbrest". Rannsóknin var lokaverkefni mitt í hjukrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Þrír þátttakendur voru greindir ofvirkir í upphafi meðferðar. Hjá tveimur þeirra fækkaði greiningarskilyrðum það mikið að eftir meðferð uppfylltu þeir ekki greiningarskilyrði fyrir ofvirkni. Fimm þátttakendur voru greindir með athyglisbrest í byrjun en eftir meðferðina hafði greiningarskilyrðum tveggja þeirra fækkað það mikið að þeir uppfylltuekki greiningaskilyrði lengur. Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar Kvíði, stress og fleira slíkt Mígreni Vefjagigt Verkir Ýmsar rannsóknir Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti. Reynsla og rannsóknir hafa sýnt að meðferð með Bowen tækni getur gagnast vel gegn margs konar kvillum og sjúkdómum. Hér að ofan eru tiltekin nokkur dæmi um fólk sem hefur fengið bata eftir Bowen meðferð. Flestar þessara frásagna eru fengnar frá Paula Esson sem er Bowen tæknir í Bretlandi og kennir við E.C.B.S., European College of Bowen Studies í London og af vefsíðunni www.boweninfo.com þar sem er yfirlit um nokkrar rannsóknir á fólki með tiltekna kvilla eða sjúkdóma sem farið hefur í gegnum meðferð með Bowen tækni. Rannsóknum og reynslusögum hefur hér verið raðað upp og þær flokkaðar gróflega eftir því vandamáli sem við er að etja. Athugið þó að slík flokkun getur aldrei orðið mjög nákvæm vegna þess að hver og einn skjólstæðingur er einstakur og margir mismunandi kvillar eða sjúkdómar geta hrjáð hvern og einn. Af þeirri ástæðu getur sami einstaklingur eða sama sagan komið fyrir á tveimur stöðum þar sem viðkomandi fellur undir tvo eða fleiri af þeim flokkum sem hér hafa verið búnir til. Athugið að hér er ekki tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. |