Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn

læknaði sig sjálfur og sá sem veitir

meðferð sé aðeins verkfæri

náttúrunnar til þess.

 

Allt sem ég geri með aðstoð TFT

meðferðar, Bowen tækni eða með

höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

miðar að því að hjálpa líkamanum til

þess að lækna sig sjálfur.

 

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla

líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér

- með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns.

Hvað er höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun?

Höfuðbeina- og spjaldhryggskerfi líkamans samanstendur af beinum höfuðs, hryggs, spjaldhryggs og mjaðma, öllum himnum heila og mænu og þeim líffærum sem tengjast framleiðslu og frárennsli heila- og mænuvökvans. Þrýstingur innan þessa kerfis fellur taktfast 4-14 sinnum á mínútu. Þetta kerfi er sú líffræðilega umgjörð sem miðtaugakerfið þarf til þess að geta þroskast og haldið sér við.

Sú eða sá sem meðferðina veitir nemur taktinn í höfuðbeina- og spjaldhryggskerfi líkamans og hreyfingar höfuðbeina, finnur stíflur og hindranir og hjálpar líkamanum að losa stíflurnar, fjarlægja hindranir og rétta sig af án þess að þvinga hann á nokkurn hátt.

Notuð er mild snerting handa við höfuð (cranium), spjaldhrygg (sacrum), eða hvaða hluta líkamans sem við á, til þess að greina vandann og meðhöndla. Líkamanum er eðlilegt að skapa og viðhalda heilbrigði og að útrýma sjúkdómum og sýkingum. Líkaminn getur samt ekki starfað eðlilega nema vefir hans og vökvar geti unnið óheftir. Með aðstoð sinni leitast höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnarinn við að skapa þetta ástand í líkamanum til þess að gera honum kleift að starfa eðlilega og lækna sjálfan sig.

Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun er óvenjulega mild en jafnframt öflug meðferð sem hefur það meginmarkmið að skapa heilbrigt jafnvægi á öllum sviðum líkamsstarfseminnar og viðhalda því. Meðferðin getur bæði fjarlægt sjúkdómseinkenni og þær truflanir sem valda þeim en getur einnig haft djúpa og áhrifamikla heilandi verkun á fjölmörg líkamleg vandamál, hvort heldur er einfaldan sársauka eða langvinnt og flókið heilbrigðisvandamál.

Meðferðin getur gagnast fólki á öllum aldri og við nánast hvaða aðstæður sem er, meðal annars vegna þess hve mild hún er. Að auki er þetta mjög þægileg og slakandi meðferð.

Meðferðin miðar alfarið að því að efla heilbrigði, styrkleika og lífsþrótt út frá innsta kjarna mannsins. Hún örvar eðlilegan lækningarmátt líkamans, kemst að rótum vandans, tekur á flóknum og erfiðum aðstæðum og samhæfir alla styrkleikaþætti líkamans til sjálfslækningar. Meðferðinni fylgir gjarnan djúp hlýju- og slökunartilfinning um leið og einstaklingurinn er leiddur inn í friðsælt vellíðunar- og jafnvægisástand.