Líkaminn læknar sig sjálfur
Hippocrates sagði að líkaminn
læknaði sig sjálfur og sá sem veitir
meðferð sé aðeins verkfæri
náttúrunnar til þess.
Allt sem ég geri með aðstoð TFT
meðferðar, Bowen tækni eða með
höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun
miðar að því að hjálpa líkamanum til
þess að lækna sig sjálfur.
Ég hjálpa þér með því að meðhöndla
líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér
- með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns.
| Hvað er Bowen tækni? |
|
Bowen tækni er tegund meðferðar sem notuð er á líkamann og kemur af stað heilunarferli, er verkjastillandi og -losandi og endurnýjar orku líkamans. Eitt af einkennum Bowen tækni er að áhrifin eru þægileg, djúp og afslappandi. Meðferð með Bowen tækni virðist mjög einföld. Þegar fylgst er með notkun hennar á líkamann og horft á hendur Bowen tæknisins lítur út fyrir að harla lítið sé gert. Áhrifin eru engu að síður mikil. Einmitt það hve létt meðferðin er, bæði fyrir Bowen tækninn og skjólstæðinginn, en jafnframt áhrifarík, hefur gert Bowen tæknina mjög vinsæla. Osteopatar, hnykkjarar og sjúkraþjálfarar eru meðal þeirra mörgu starfsstétta sem nota Bowen tækni, enda er hún eins og ferskur og slakandi vindur fyrir marga þá sem vanir eru að veita meðferð þar sem mikil líkamleg vinna er nauðsynleg. Bowen tæknir notar þumla og fingur á ákveðna staði á líkamanum og gerir rúllandi hreyfingar með það að markmiði að trufla boðskipti milli heila vöðva og bandvefs og hafa þannig áhrif á orkuflæði innan líkamans. Þeir sem notað hafa Bowen tækni hafa furðað sig á áhrifamætti þessarar mjúku og einföldu meðferðar. Russel Dick hefur starfað sem Osteopati í yfir 20 ár og er deildarforseti í Northern Countries School of Osteopaty. Hann segir Bowen tæknina hafa gjörbylt starfseminni á stofunni hans því átta af hverjum tíu sjúklinga hans vilja fá meðferð með Bowen tækni í stað hinnar hefðbundnu Osteopatíu. Þeir sem aflað hafa sér mestrar reynslu og hafa mest að gera við notkun Bowen tækni segja það reynslu sína að flestir skjólstæðingar þurfi aðeins að mæta tvisvar til fjórum sinnum í meðferð. Tvær til þrjár meðferðir með viku millibili eru oftast nóg til að ná fram varanlegum bata við langvarandi verkjum en þó eru stundum fleiri meðferðir nauðsynlegar. Til að ná fram hámarksárangri er mælt með að ekki séu aðrar meðferðir teknar samhliða Bowen, svo sem nudd, svæðanudd, sjúkraþjálfun og þess háttar. Ráðfærðu þig við Bowen tækninn þinn. |